|
(Reglugerð EU 2017/373, ICAO viðauki 9, ICAO viðauki 11, ICAO PANS ATM (DOC 4444)).
|
||||
|
Flæðisstjórnun flugumferðar er þjónusta sem er veitt með það að markmiði að stuðla að öruggu, skipulegu og hröðu flæði flugumferðar með því að tryggja að geta flugumferðarstjórnar sé nýtt til hins ýtrasta og að umfang flugumferðar sé í samræmi við getuna sem viðeigandi þjónustuveitendur flugumferðar hafa gefið upp.
|
||||
|
(ICAO NAT DOC 007)
|
||||
|
Vegna þarfa farþega, tímamismunar og hávaðavarna flýgur mest af flugumferð í gegnum úthafssvæði íslenska flugstjórnarsvæðisins í tveimur bylgjum, annars vegar flug á vestlægri stefnu frá Evrópu að morgni, hins vegar flug á austlægri stefnu sem fer frá norður Ameríku að kvöldi. Til að nýta loftrýmið sem best eru ekki gerðar kröfur um flughæðar tengt flugátt heldur er flæðið, sem fer yfir 30 vestur í hámarki á vesturleið milli 1130 UTC og 1900 UTC og hámarki á austurleið yfir 30 vestur milli klukkan 0100 UTC og 0800 UTC.
|
||||
|
Aðskildir ferlar eru gefnir út innan hæðarbandsins (FL310 - 400) daglega fyrir austlæga og vestlæga flæðið. Þessir ferlar eru kallaðir Organised Track System eða OTS.
|
||||
|
Ekki er skilda að nota OTS ferlana. Flugvélar mega fljúga á handahófskenndum ferlum sem eru alfarið utan OTS eða hvaða feril sem er sem kemur saman við eða fer út af OTS ferlunum. Það er heldur ekkert sem kemur í veg fyrir að áætla feril sem fer í gegnum OTS ferlana. Hins vegar, í því tilfelli, má búast við því að, þó svo ATC geri allt sem hægt er til að gefa heimildir í gegnum OTS ferlana í umbeðnum flughæðum, er líklegt að búast megi við breytingu á ferlum eða að nauðsynlegt verði að gera miklar breytingar á flughæðum frá því sem áætlað var.
|
||||
|
(ICAO NAT Doc 007)
|
||||
|
Samningur hefur verið gerður við aðila sem veita flugleiðsögusvæði innan NAT svæðisins varðandi notkun flughæða í úthafssvæðinu.
|
||||
|
Samkomulagið tekur einnig til notkun flughæða þar sem flugleiðin er að hluta eða öllu leyti utan OTS ferlanna, auk flughæða fyrir flug sem flýgur utan gildistíma OTS.
|
||||
|
Flugstjórnarmiðstöðin í Reykjavík vinnur í samstarfi við Network Manager Operations Centre (NMOC) varðandi skipulag flugs milli Íslands og Evrópu.
|
||||
|
Flæðistjórnun er beitt:
|
||||
|
Ábyrgð NMOC:
|
||||
|
NMOC notar starfshætti, sem kynntir eru í skjölum NMOC. Þessir starfshættir hafa, sama vægi og aðrir starfshættir sem birtir eru í þessari handbók.
|
||||
|
Staða flæðisstjóra hefur verið skilgreind innan flugstjórnarmiðstöðvarinnar í Reykjavík. Hlutverk flæðisstjóra er að:
|
||||
|
Flugumferðarþjónusta á flugvöllum á Íslandi mun:
|
||||
|
Flugrekstraraðilar skulu kynna sér og fylgja:
|
||||
|
Brottfarir frá Íslandi inn í EUR svæðið fá úthlutað brottfarartíma frá NMOC. Flug sem hafa lagt inn flugáætlun með flugleið inn í svæði eða á flugvöll með takmörkunum sem NMOC hefur umsjón með, munu fá skilgreindan brottfarartíma (CTOT) sendan með skeyti (SAM).
|
||||
|
Reglur um flugáætlanir fyrir flug frá Íslandi inn í EUR svæðið eru:
|
||||
|
||||
|
Það er ávallt hagur flugrekenda sjálfra að veita sem réttastar upplýsingar um sín flug til að fyrirbyggja óþarfa tafir. Síðbúnar breytingar auka til muna líkur á töfum.
|
||||
|
Rétt notkun STS/ATFMEXEMPTAPPROVED mun tryggja að samþykkt flug lenda ekki í óþarfa töf.
|
||||
|
Sjá texta á ensku.Nákvæmir starfshættir NMOC eru gefnir út í handbók NMOC, sem hægt er að sækja í bókasafn Eurocontrol eða á vefsíðu NMOC (sjá ENR 1.9.3.6).
|
||||
|
Upplýsingar og ráð um flæðisstjórnun innan íslenska flugstjórnarsvæðisins, þar með taldar breytingar á síðustu stundu, má fá hjá flæðisstjórn í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík.
|
||||
|
Vefsíða skjalasafns Eurocontol:
|
||||
|
Hægt er að hafa samband í gegnum svæði merkt Contact us á NMOC síðunni.
|
||||
|
Upplýsingar um tengiliði er að finna á vefsíðu
|
||||
|
||||
|
Gefnir eru út reglur um flugferla fyrir flugumferð til og frá Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvelli og lýst í AIP ENR 1.8.3.1.3.7.
|
||||
|
(Reglugerð 1045/2007).
|
||||
|
Samgöngustofa ber ábyrgð á stjórnun loftrýmis á skipulagsstigi 1.
|
||||
|
Samgöngustofa ákvarðar skipulag loftrýmis og veitir notendum aðgang að því.
|
||||
|
|